ferstikla
um okkur
Litla matvörubúðin
Litla hvalasafnið
Af grillinu

 

TENGLAR

Þjónusta í þjóðleið

Ferstikluskálinn er staðsettur í þjóðleið þar sem leiðin liggur um Ferstikluháls og Dragháls yfir til Borgarfjarðar.

Í Ferstiklu hefur verið veitt þjónusta við ferðamenn frá því elstu menn muna og er veitingaskálinn sjálfsagður áningarstaður þeirra sem kjósa að njóta fegurðar Hvalfjarðar.

Ferstikla er veitingaskáli og verslun og er opinn alla daga frá 10 til 22 yfir sumarið en á vorin og haustin er opnunartíminn aðeins styttri.

Í Hvalfirði er fjölbreytt ferðaþjónusta í gistingu, veitingasölu og einnig í ferðatengdri matvælaframleiðslu, afþreyingu og menningu.

Náttúrufegurð fjarðarins er einstök og býður upp á mikla möguleika bæði fyrir einstaklinga og hópa sem geta notið náttúrunnar allt frá fjöru til fjalla.

Ferstikla í Hvalfirði opnar þann 12. maí og lokar í lok september.

Nánari upplýsingar um ferðaþjónustu í Hvalfirði má finna á vefnum www.visithvalfjordur.is

 

skalinn